Pís end kvæöt!

Æj hvað það er gott þegar að ró kemst á húsið.

Sigurgeir Heiðar sofnaður, sofnaði í fyrstu tilraun, mjög friðsæll greyið. Enda var hann líka ferlega þreyttur og eitthvað slappur.  Sjáum til hvernig hann verður á morgun.

Í gær héldum við upp á 2 ára afmæli frumburðarins. Það var ferlega fínt. Kökur og læti á boðstólum.

Ég bakaði afmælistertuna ógurlegu, það var sko græn traktorskaka.  Ég get nú því miður ekki sagt að hún hafi verið neitt góð.  En hún var samt töff :D

Hann fékk traktor, syngjandi batteríslausa (thank god) belju, vind/regn úlpu og buxur, hjól, hjálm, bjöllu, buxur, bolta, húfu og peninga svo að fátt eitt sé nefnt.

Á Sunnudaginn stefni ég að því að halda fyrir hann annað afmæli, svona fyrir vinina.

Kvíði nú reyndar aðeins fyrir því, þar sem að ég þarf að gera allt sjálf... engin elsku mamma í þetta skiptið Whistling

Ég er nú aðallega búin að vera að vinna undanfarnar vikur. Það hefur verið mjög fínt. Góður vinnutími og launin góð.

Á morgun er sautjándi júní, þjóðhátíðardagur Íslendinga. Spurning um að skella sér "niðrí" bæ.

 

Ég tók eftir því að þetta blogg hérna fyrir neðan hefur farið fyrir brjóstið á mörgum. Ég hef alveg rétt á að segja mína skoðun á þessu máli. Mér finnst eiginlega bara merkilegt hvað fólk getur verið dónalegt!!

En svo að ég svari nú nokkrum "kommentum" þarna:

Lena segir:
váh hvað þú ert sorgleg , the girl with blowjob lips hahah ertu að djóka eða , er það svona sem þú nærð i karlmenn , þú átt meiri séns á að ná fkn gæs og taka hana með your blowjobs lips ,, jesus minn , hahah
Ég þarf ekkert "séns" í að ná í karlmenn, ég á mann!

Hallgrímur segir:
Alltaf gaman að lesa væl blogg. Mikið rosalega er sumt fólk með mikinn sand í píkunni. 
Hvernig í ósköpunum færðu það út, í þessum stutta pistli að ég sé með sand í píkunni???

Gunnar Holmsdal segir:
jæja kelling,meðað við þitt útlit ættiru ekki einu sinni sjalf að fa mikið i pikuna enda doldið obvius að þu hefur ekki fengið mikið að riða ef bannerinn þinn a siðunni er lips for a blow job, þú veist oftast er kallinn desperate i blowjob en , þú ert desperate í að fá að totta. og róleg að gera úlfalda úr mýflugu með þetta hvað kvennmennirnir gera þrífa upp eftir kaffið hversu erfitt og mikið verk getur það verið??eg hef nu nákvæmlega ekkert a moti kvennmönnum(nema feminsitum smá)en vá ekki vera að blogga um e-h svona rugl sem nákvæmlega enginn hefur ahuga á, eina ástæðan fyrir þvi að þú fekkst athygli er útaf vefsíðunni 69.is vertu sæl.
Ég er nú ekki mikið fyrir að ræða mín ástarmál, en svona því að þú hefur greinilega áhuga á því hvað ég fæ í píkuna mína, þá langar mig að segja þér að ég fæ alveg nóg í píkuna mína. Ég er alls ekki desperate í að fá að totta. Það var enginn að segja að það væri erfitt að þrífa eftir kaffið. Ef að þú hefur ekki áhuga að þessari færslu, þá þarftu ekkert að vera að lesa þetta, og því síðuna að "kommenta".

Vá.. ég nenni ekki meir!

Er farin á Selfoss..

Heyrumst á miðvikudaginn (líklega).

Ólöf Anna :) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ mín kæra. Ég veit ekki alveg hvar skal byrja (ég var nefnilega að lesa öll bloggin núna í fyrsta sinn). En jú ég skal byrja á því að segja þér að ég var nú t.d. áðan að dást að þér í hljóði fyrir að halda sálarrónni þegar sonur þinn var alveg að missa sig í grátnum. Þegar ég var með börnin mín lítil þá gat ég nefnilega ekki alveg alltaf höndlað svona grát lengi. Svo verð ég að segja þér að þú minnir mig svolítið á góða vinkonu mína og það er sko ekki leiðum að líkjast Svo vil ég benda þér á góða leið (sem ég nota oft og iðulega) sem er þannig að innbyrða bara það sem mér hentar. Þá meina ég að það voru miklu fleiri góð komment heldur en slæm og því átt þú bara að hugsa um þessi góðu og gleyma hinum. Svo er ég líka alltaf til í að fara út að labba með þér eða tala við þig ef þú vilt og ég vona svo sannarlega að þið verðið með okkur í USA um jólin Fyrirsögnin á blogginu þínu er náttulega eftirtektarverð, en ef þú velur svona fyrirsögn þá verður þú náttulega að vera nógu sterkur persónuleiki til að taka kommentum um hana, sama þótt þau séu lúaleg og miskilinn. Persónulega mundi ég velja minna sláandi fyrirsögn, en það er bara ég. Og þú ert fín eins og þú ert og ekki láta þér detta neitt annað í hug. Kær kveðja.

Kata (IP-tala skráð) 16.6.2008 kl. 23:23

2 identicon

Þetta eru bara sannir íslendingar, lesa og innbyrða það sem þeim hentar til að geta hneykslast á því. Algerlega ástæðulaust að svara þessu. Einhverntíman var sagt að brundurinn færi út í blóðið hjá mönnum sem ekki fengu að ríða lengi, og þá hafi þeir allt á hornum sér og missi jafnvel vitið. Það eru greinilega fleiri en maðurinn í útvarpinu sem þannig er ástatt fyrir. Þetta hefur líka verið kallað b.f.g.

mamma (IP-tala skráð) 17.6.2008 kl. 11:03

3 Smámynd: Ólöf Anna Brynjarsdóttir

Veistu Ester.. Mig langar að taka þig og knúsa í ræmur!

Kommentin þín lyfta mér alltaf upp!! 

Ég sendi þér bara netknús *KNÚS* :* og koss :* 

Ólöf Anna Brynjarsdóttir, 17.6.2008 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband