Ég hata slúður!

Í gær lenti ég í því að strákur sem að ég þekki mjög vel var að slúðra um mig!

Ég var að tala við annann strák úr sveitinni minni, þegar að hinn kemur til okkar.

Sveitastrákurinn fer að spurja hvort að við gætum reddað honum dópi.
Ég segist ekki getað það því að ég hefði engin sambönd.
Þá segir hinn strákurinn "Víst veist þú um dóp, þú ert í neyslu, þú ert að díla (selja)..
Sveitastrákurinn horfir á mig, og trúði þessu mæta vel.
Ég labba í burtu þegar ég var búin að leiðrétta mitt mál.
Svo er ég bara inni að dansa þegar að sveitastrákurinn kemur að mér og segir "ég er með pening, geturu reddað mér einni kúlu eða 1 grammi.
Ég vissi ekki hvað ég átti að segja.
Þá hafði hinn strákurinn haldið áfram að slúðra.
Ég segist bara ekki vita um neitt, að ég sé enginn díler, og ef ég væri það þá væri ég löngu farin því að þarna inni væru löggur "undercover" sem var engin lýgi.
Hann suðar og suðar, vildi með engu móti trúa mér.

Ok. Ég var ekki sátt því að ef að fólk hefði heyrt þetta þá hefði lygasagan komin svona *smelli fingrum* útum allt, því að þú veist alveg hvernig Selfoss er.

Ef að mamma mín hefði frétt þetta þá hefði ég verið í DJÚPUM SKÍT  því að það er sko EKKI auðvelt að sannfæra mömmu.. það er örugglega auðveldara að ... tjahh, ég veit ekki hvað! 

Ef að þessi saga fer eitthvað áfram þá er barnaverndarnefnd komin heim til mín, ég missi mjög líklega Sigurgeir Heiðar í hendurnar á ónefndum aðila, og ekki vil ég það.

Ég er líka ekki sátt með hinn strákinn, því að hann vissi vel að ég væri ekki í neyslu, ekki að selja eða neitt.. Ég er ekki innan um dóp hvern dag.. svo ég viti! 

Jæja.. þetta gengur ekki... ég ætla að fara að sofa :D

 Tek það einu sinni en fram að ég er EKKI í neinni neyslu eða kem nálægt dópi!!!!

amfetamin_small

 Ekki minn skítur sko!

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jesús minn elsku dúllan mín..
Er ekki í lagi ???
HAHAHAHAHHAHAHAHH! Lúðar þetta fólk.. Belive me..
þú hefur alveg séð það þarna í gamla daga þegar fólk var að segja að maður væri "sofandi" hjá hinum og þessum .   :O
En já ég reyni að kíkja á þig s00n í frí vikunni minni ;D

Unnur Edda (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 19:00

2 identicon

úff vængefni gaur! nei auðvitað ertu ekki í dópi !! alltof gáfuð til þess :D myndir ekki vera það heimsk að byrja á því ;*

..... (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 22:20

3 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Það er bestað sleppa öllu ólöglegu dóti.  Þú þarft varla að hafa áhyggjur af kjaftasögum.

Rúna Guðfinnsdóttir, 7.10.2008 kl. 09:29

4 Smámynd: Sigríður Svala Hjaltadóttir

Fyrst kjaftasagan er ekki sönn þá þarftu ekki að hafa neinar áhyggjur, sannleikurinn vinnur lang oftast. ekki óttast, vertu hugrökk og stattu með sjálfri þér. Ég hef ekki eina einustu trú á að einhver komi bara allt í einu og taki prinsinn þinn frá þér. Ekki þu velta þér uppúr því hvort mamma þín trú þér eða ekki það er hennar vandamál, ef þú veist sannleikan þá þarftu ekki að óttast.

jæja þetta er allavega mitt álit á þessu.

gangi þér vel.

Sigríður Svala Hjaltadóttir, 8.10.2008 kl. 07:15

5 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

innlitskvitt frá mér og knús þín Gunna

Guðrún unnur þórsdóttir, 8.10.2008 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband