28.8.2008 | 19:50
Veik eða heitt??
Í dag í vinnunni rauk ég inn á klósett og ældi eins og múkki. Fór því heim um 1 leitið.
Radda (yfirkonan mín) heldur að mér hafi bara orðið svo svakalega heitt og ælt þess vegna. Ég tel það alls ekki ólíklegt, og ég hreinlega vona það bara, því að ég nenni svo innilega ekki að vera veik.
Mér er ennþá svolítið flögurt, ef ég loka augunum þá hringsnýst allt.
Áðan bakaði ég smákökur, þær voru alveg fínar sko, svolítið brenndar, en það er bara betra ;)
Svo eldaði ég eitthvað pastasull, því ég var of löt til að elda eitthvað almennilegt.
Svo að ég kvöldmatinn var pasta og smákökur í eftirrétt.. Erum reyndar ekki búin að fá þær, því að drengurinn er ennþá að borða.. Hann hlýtur að springa bráðlega.. hann er að klára af þriðja disknum sínum... og ég borðaði einn og var södd!!
Ég ætla að fara aftur í vinnuna á morgun :D og hlakka svei mér þá bara til ;)
Jæja... segi þetta bara gott í dag. Ætla að fara að taka matin af krakkanum, því hann er orðinn svo saddur að hann er farinn að stynja!!!
Kveðja Ólöf Anna :)
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.